

Human Organ er tónverk eftir Þórð Hallgrímsson sem kannar nýjar leiðir til nótnaritunar og nýtingu hljóðfærasmíða sem tónsmíðatóls. Verkið er flutt af sex hljóðfæraleikurum sem leika á hljóðfæri sem eru sérsmíðuð fyrir hvern og einn. Sjöundi flytjandinn leikur á hljóðfæri, sem smíðað er úr ventlahúsi af trompet og garðslöngum, hvers hlutverk er að blása upp og hleypa lofti úr sex blöðrum sem staðsettar eru fyrir framan hina hljóðfæraleikarana. Þeir þurfa svo að túlka stærð blaðranna yfir í parametra svo sem dýnamík, tónhæð, rytma o.fl. Flytjendurnir sjö verða þannig að einni veru; Hinu mennska orgeli. Hljóðfæri sem dregur andann. Lifandi nótur.
Flytjendur:
Erla Hlín Guðmundsdóttir
Eydís Kvaran
Iðunn Einars
Jón Arnar Einarson
Þórbergur Bollason
Þórður Hallgrímsson
Þórhildur Magnúsdóttir