Læra að sjá

Læra að sjá

Læra að sjá er þátttökusmiðja sem hefst á stuttum göngutúr og heldur svo áfram með klippimyndasmiðju. Þátttakendum býðst að hægja á sér, fylgjast með nærumhverfinu og upplifa Hamraborg á annars konar hátt.

Þátttakendum er boðið í 15 mínútna göngutúr um hátíðarsvæðið þar sem þeir eru hvattir til þess að beina athyglinni að formum, línum, áferð, mynstrum, andstæðum og tilviljanakenndum samsetningum í hversdagslegum fyrirbærum á borð við gangstéttir, gras, steina, ljós og skugga. Athyglinni verður ekki einungis beint að hinu sýnilega heldur einnig að andardrætti, lykt og snertingu. Gönguferðin er meðvituð, hæg og áreinslulaus, þar sem áhersla er lögð á núvitund og eftirtekt fremur en skrásetningu.

Eftir gönguna snúa þátttakendur aftur inn í vinnustofuna og yfirfæra upplifunina yfir í klippimyndir. Markmiðið er að bregðast við ytra umhverfi á sjónrænan hátt — vinna með tilfinningar, form, uppbyggingu, liti og áferð.

Engrar fyrri listrænnar reynslu er krafist. Vinnustofan er öllum opin og aðgengileg, þar sem áhersla er lögð á ferlið sjálft frekar en lokaniðurstöðuna.

Sjá aðra viðburði