

Öll velkomin á kvöld í Salnum þar sem við munum sýna tvö myndbandsverk eftir Jeremy Deller.
Logi Leó mun þeyta skífum!
Sjáumst í Hamraborg!
Our Hobby is Depeche Mode
Our Hobby is Depeche Mode er heimildarmynd frá árinu 2006 sem leikstýrð er af Turner-vinningshafanum og listamanninum Jeremy Deller í samstarfi við kvikmyndagerðarmanninn Nicholas Abrahams. Í stað þess að einblína á hljómsveitina sjálfa kannar heimildamyndin hinn ákafa, alþjóðlega hliðarmenningarheim Depeche Mode-aðdáenda og hvernig popptónlist verður að líflínu og tákni fyrir persónulegt frelsi.
Everybody in the Place
Í verkinu Everybody in the Place, endurskoðar listamaðurinn Jeremy Deller þau félagslegu og pólitísku öfl sem mótuðu hið svokallaða annað sumar ástarinnar í Bretlandi (1988-89.) Myndin er byggð upp í kringum fyrirlestur sem hann hélt fyrir nemendur í stjórnmálafræðum. Hann notar sjaldgæft myndefni úr safni og sýnir fram á tengsl acid house og rave-menningar og atvinnuleysis, spennu í garð lögreglu og verkfalls námuverkamanna 1984-85 - sem voru áhrifamikil átök á landsvísu og breyttu pólitískri stefnu Bretlands.
Hústónlist ferðaðist frá klúbbum Chicago til Bretlands og rann saman við bresk-karabíska sound system menningu. Hún færðist yfir á næturklúbba, vöruhús og út á opin svæði. Acid house, og síðar rave, birtist ekki upp úr þurru. Menningin þróaðist í landi sem var sundrað og gaf ungu fólki nýjar leiðir til að koma saman, dansa og byggja samfélag á meðan eldri kerfi voru að brotna niður.