
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í opnunarpartý Hamraborg Festival og gjörningakvöld í Gerðarsafni!
Formleg opnun hátíðarinnar mun eiga sér stað fyrr sama dag, 28. ágúst, kl. 18:00 með tónleikum í Salnum, opnun allra listasýninga og Gjörningum í bókasafninu og á ferðaskrifstofunni Visitor.
Gjörningakvöldið hest kl 20:00.
Hamraborg Festival býður ykkur á ný á gjörningakvöld í Gerðarsafni þar sem Innlent og erlent listafólk mun taka yfir rými Gerðarsafns og nú einnig bílastæðahúsið undir Molanum.
Eistneska danstvíeykið Juliuus Vaiksoo og Helena Tõrva leiða okkur inn í undurfagran líkamlegan glundroða. Michael Richardt ásamt Agli Ásdísarsyni leyfa tónum að flæða og enduróma um sýningarrýmin í Sæborgískum hljómflutingi. Silfrún Una fær bíla til að dansa og tala á meðan saumavélar og hárkambar stíga inn í hljóðgjörning Lindy Lin þar sem gestum býðst að fylgja hljóðinu hvert sem það leiðir.
Líkamar, vélar, draumar, hreyfing og dass af ljómandi ringulreið.
Í kjölfarið munu DJ ÓK þeyta skífum og Krónikan verður opin fram eftir kvöldi! Öll velkomin í partý!!!***ATH: fyrsti gjörningurinn mun eiga sér stað utandyra, í bílastæðahúsinu undir Molanum (á móti Gerðarsafni)!