

Hvað ef þú gætir haldið á tíma — ekki mannlegum tíma, heldur plöntutíma?
Í gróðurhúsi Garðyrkjuskólans að Reykjm vinna margar ómennskar lífverur saman: rætur plantna teygja sig, bakteríur og skordýr búa til jarðveg, býflugur frjóvga, sólarljós fellur á lauf bananatrjáa. Mest af þessu lífi þróast of hægt, of hljóðlega eða á tíðni sem menn eru einfaldlega ekki gerðir til að taka eftir.
Verkefnið Gagnaveröld plantna (Plant Data Worlds) gerir þetta ósýnilega líf áþreifanlegt. Með því að nota skynjara og hljóðnema sem eru staðsettir meðal lifandi plantna fanga listamennirnir Thomas Pausz og Miguel Crozzoli faldan púls vistkerfis þeirra — vaxtarmynstur, umhverfisbreytingar og suð skordýralífsins. Þessi gögn eru síðan mótuð með vélrænu námi í eitthvað sem hægt er að halda á: lítinn skúlptúr sem mótaður er eftir einstöku vistkerfi og ber með sér einkenni lifandi staðar.
Þetta eru þó ekki þögul fyrirbæri. Hver skúlptúr hefur sína eigin rödd — hljóðheim sem er dreginn af hljóðfræðilegum strúktur gagnanna sjálfra. Haltu, hlustaðu og ferðastu um.
Það sem eitt sinn var óhlutbundið gagnasafn verður að einhverju sem þú getur tengt við af sömu forvitni og umhyggju og tengir okkur við plöntur.
Þetta er boð um að hægja á sér og skynja heiminn eins og plöntur gera.
Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á hefðbundnum opnunartíma sýningarstaða til 4. september.