

Augusto er portúgalskur listamaður sem lærði teikningu í Lissabon en býr nú í Reykjavík. Hann hóf feril sinn með birtingu verka sinna á netinu en áður starfaði hann sem sjálfstæður teiknari og fékkst við skopmyndir fyrir dagblöð. Verk hans spanna myndlýsingar, veggmyndir, sjónræna hönnun og málverk.
Augusto grípur tilfinningar, vandræðaleg augnablik og innri hugsanir með sínu einstaka myndmáli og sýna verk hans persónur sem eru krúttlegar og fyndnar en á sama tíma gróteskar; graðar og kaldhæðnar; fallegar, en á óhefðbundinn hátt.
Hann sækir innblástur í einkastundir fólks og hugsanir sem það lætur sjaldan í ljós eða deilir með öðrum, og blandar við þær lúmskum brengluðum húmor.
Á hátíðinni sýnir Augusto nýja röð málverka og teikninga í Polo Vape Shop þar sem litríku verk hans teygja sig yfir veggi rýmisins.