

earth fragments er hljóð- og leirverk þar sem áhugi listamannsins á jarðfræði og rafmagnsfræði sameinast. Nokkrir leirskúlptúrar mynda saman einskonar landslag sem hreyfist og ómar þegar skúlptúrarnir rekast hver í annan. Litlar hreyfingar innan verksins fá áhorfendur til að fylgjast grannt með skúlptúrunum og koparvírunum sem koma útfrá þeim.
Hreyfingarnar og hljóðið minna á jarðhræringar, sem verkið er einmitt innblásið af. Uppruni hreyfinganna í verkinu eru jarðskjálftabylgjur úr Hengli sem spilaðar eru í gegnum vírana sem festast við skúlptúrana, en nokkrir þeirra hafa áfasta rafspólu og segul eins og notuð eru í hátölurum til að fá þá til að víbra og senda frá sér hljóðbylgjur. Þannig haga skúlptúrarnir sér eins og hátalarar og hreyfast eins og hátalarakeilur gera þegar lágar tíðnir (eins og jarðskjálftabylgjur) eru spilaðar í gegnum þær.
Hrjúf áferð einkennir litríkt yfirborð leirskúlptúranna, þar sem gígar og gosop voru höfð að fyrirmyndum við gerð þeirra. Litirnir koma úr leir sem er fenginn við Krýsuvík. Ef komið er nálægt verkinu er ef til vill hægt að finna brennisteinslykt.
Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á hefðbundnum opnunartíma sýningarstaða til 4. september.