
Ásrún Magnúsdóttir & Halla Þórlaug Óskarsdóttir
Ásrún Magnúsdóttir er danshöfundur og hefur unnið að ólíkum verkum í gegnum tíðina bæði hérlendis og erlendis. Hún er stöðugt að teygja út hugmyndina um dans og kóreógrafíu og hverjir geta dansað og að gefa ólíku fólki og nýjum röddum sviðið hverju sinni.
Halla er rithöfundur, menningarrýnir og verkefnastjóri með áherslu á bókmenntir, samfélag og hinsegin sjónarhorn. Í verkum sínum skoðar hún samspil persónulegra og pólitískra radda. Hún trúir á umbreytingarmátt orðsins.
Fyrir utan að vera æskuvinkonur hafa Halla og Ásrún unnið að verkum saman bæði fyrir Umbúðalaust, verkefni innan Borgarleikhússins og Útvarpsleikhúsið.